Fróðleikur
Hlaðan er stolt af því að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á fatnað og merki fyrir börn sem er umhugað um velferð okkar allra og jarðarinnar í heild. Flíkurnar okkar eru GOTS og eða OEKO-TEX vottaðar sem þýðir að viðskiptavinir okkar geta valið barnafatnað sem inniheldur vistvæn efni, fatnað sem er endurvinnanlegur og fer í gegnum sjálfbært framleiðsluferli þar sem öll efni í framleiðsluferlinu er niðurbrjótanleg.
GOTS og OEKO TEX eru þær vottanir sem við horfum á hvað mest í fatnaði. GOTS stendur fyrir Global Organic Textile Standard. Vottunin var kynnt árið 2006 og hefur síðan þá sett hæsta staðalinn fyrir framleiðslu á lífrænum þráðum. Þessi alhliða staðall nær yfir allt framleiðsluferlið, frá sjálfbærri og siðferðislegri uppskeru á lífrænt ræktuðum plöntum til umhverfisvænnar og samfélagslega ábyrgrar framleiðslu og merkingu á vörum. Þegar vara er hins vegar OEKO TEX vottuð merkir það að lokavaran er eiturefnalaus og laus við skaðleg efni, þessi staðall fylgir ekki eftir framleiðsluferlinu sjálfu.
Ekki eru gerðar sömu kröfur á alla lífræna framleiðslu. Vefnaðarvara getur verið lífræn eða gerð úr lífrænum efnum svo lengi sem hún inniheldur 70% náttúrulega lífræna þræði. Fatnaður sem er GOTS vottaður krefst þess hinsvegar að varan innihaldi að minnsta kosti 95% af lífrænum náttúrulegum þráðum. Það þýðir að fatnaðurinn er ekki aðeins lífrænn heldur er hann með lífræna vottun. Hlaðan merkir sérstaklega allar vörur á heimasíðu með tilliti til vottunar og innihalds.
Frá upphafi eða 2012 hefur Hlaðan eingöngu notast við umhverfisvænar umbúðir og því veljum við alltaf pappír í stað plasts. Hlaðan er stolt af því að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á afar fallegan frágang á sendigum sem eru umfram allt niðurbrjótanlegar og vænar fyrir umhverfið. Innihaldið það er tissupappírinn, límmiðar og nafnspjöld og fleira er FSC vottað. FSC stendur fyrir Forest Stewardship Council certifies. Sem merkir að umbúðirnar eiga uppruna sinn að rekja úr skógi og afurðakeðjum sem er stjórnað á ábyrgin og á sjálfbæran hátt. Þá eru umbúðirnar sýrufríar og er notast við soja blek í prentun. Sé pöntun þín lítil og smágerð er möguleiki á að þú fáir pakkann þinn í 100% niðurbrjótanlegum plöntugerðum poka.