um hlöðuna
Hlaðan er hugarfóstur, nálgun eða bara áhugamál skapandi ljósmyndara mariakatrin.is. Hún var áður í rekstri sem verslun og vefverslun á árunum 2011-2015. Börn, dýr, fallegt umhverfi, hrein náttúrleg efni, villtur gróður og sveitin eru mér uppspretta endalausra hugmynda og verkefna. Ég tengi sterkt við hluti sem hafa sál. Fallegt vandað handverk veitir mér innblástur alla daga. Hlaðan, verslun er vísun að náttúrulegri nálgun og tímalausri klassík.
Í starfi mínu sem ljósmyndari (mariakatrin.is) , hef ég veitt foreldrum barna leiðsögn í fatavali ef þeir óska eftir því, til að ná fram ákveðnu útliti eða tilfinningu í myndum því þar skiptir áferð fatnaðarins miklu máli. Sem móðir fjögurra drengja, hef ég átt erfitt með að finna náttúrulegan og tímalausan fatnað, eftir ákveðinn aldur. Ég hef þurft að leita víða. Smábarnafötin eru oft draumi líkust en svo stækka börnin og þá verða fötin oft svo krefjandi og fullorðinsleg að barnið týnist. Ég er að tala um risastór lógó, skæra liti, ofurhetjur og geviefni. Vandaður fatnaður stenst betur tímans tönn og hægt er að nota hann aftur og aftur.
Vefverslunin Hladan.is er alltaf opin.