Skilmálar
Skilmálar
Upplýsingar um seljanda, Hlaðan verslun ehf,Kt: 611020-1040,VSK nr. 139194, Brúarstræti 2, 800 Selfoss, hladan@hladan.is 8989291.
Hlaðan áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar sama dag eða fyrir kl 15:00 næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og endurgreiða vöruna. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti, gilda afhendingar-, ábyrðgar og flutningsskilmálar Íslandspóst um afhendingu vörunnar. Hlaðan ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef varan týnist í pósti eða verðu fyrir tjóni frá því að hún er send frá Hlöðunni til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð á vöru og sendingarkostnaður
Öll verð í vefversluninni hladan.is eru með inniföldum 24% virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Hlaðan sendir allar vörur með Íslandspósti samdægurs eða fyrir kl 15:00 daginn eftir kaup. Farið er eftir verðskrá Póstsins. Ef verslað er fyrir meira en 10.000kr fellur sendingakostnaður niður.
Greiðsla á síðu
Greiðsla á netinu fer fram í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi Valitor.
Að skipta eða skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan er keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprungalegt verð hennar, nema viðkomandi vera sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Hafðu samband við okkur á hladan@hladan.is og við útvegum þér endursendingamiða á vörusendinguna þér að kostnalausu. Með endursendingamiðanum hefur kaupandi möguleika á að skila og endursenda vörur án vanræða. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta í formi kóða eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru og vill ekki inneignarnótu verður varan endurgreidd eða bakfærð eftir að vara er móttekin. Athugið upphaflegur sendingakostnaður er ekki endurgreiddur.
Gölluð vara
Sé vara gölluð þarf það að koma í ljós innan 14 daga, viðskipavin er boðin ný vara í staðin og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eins endurgreiðum við vöruna, bakfærum sé ekki til vara í staðin. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar um nafn, tölvupóst og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandi að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavin okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðin er um.
Lög og varnaþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.